Hvernig veljum við skó?
Er komið að því að versla nýja hlaupaskó? Það er gott ráð að byrja á því að sparka af þér gömlu skónum og skoða sólann á þeim, hvernig fóturinn á þér hefur eytt skósólanum. Fóturinn á þér segir alla söguna.
Skórnir verja allan líkamann
Skórnir skipta mjög miklu máli þegar maður stundar hlaup. Mörg vandamál, ekki bara í fótunum, heldur einnig í liðamótum, hnjám, mjöðmum, spjaldhrygg og ofar í hryggnum má oft rekja til þess að vera að hlaupa á slæmum skóm. Þess vegna er mikilvægt að hlaupa í réttu skónum frá byrjun.
Rétt stærð er bara byrjunin
Algeng mistök er að fólk kaupir of litla skó. Hlaupaskór eiga að umvefja fótinn vel, styðja við hælinn og ristina, en passaðu samt að hafa rúmt um tærnar. Ekki fara eftir þinni venjulegu skóstærð. Fætur geta verið stórir, litlir, breiðir, með háa eða lága rist, verið mismandi flatir eða bara ólíkir á einhvern hátt. Þess vegna er nauðsynlegt að prófa mismunandi skó og skoða hvernig þeir sitja á fætinum. Skór sem fá kannski toppeinkunn henta samt kannski alls ekki fyrir fótinn þinn. Reyndu að fá að hlaupa smá í versluninni eða á hlaupabretti.
Næst er að athuga fótstigið þitt
Hvernig þú stígur niður í fótinn þegar þú hleypur skiptir líka miklu máli þegar þú ert að velja þér skó. Skór eru mismunandi uppbyggðir og styrkja og styðja við fótinn á mismunandi hátt. Þú getur minnkað álag á liðbönd og vöðva með því að velja skó sem eru með styrkingu sem passar þér miðað við þitt fótstig.
Þú getur byrjað á því að taka gömlu skóna og sett þá á borð fyrir framan þig, ef þeir halla innávið þarftu ef til vill innanfótastyrkingu, ef þeir halla útávið þá þarftu utanfótastyrkingu, eða eru þeir nokkurnveginn beinir þá ertu sennilega með beint fótstig og þarft hvorugt.
Leitaðu aðstoðar hjá starfsfólki Intersport, komdu jafnvel með gömlu skóna með þér í verslunina, þeir segja mikið til um fótstigið þitt.
Þyngd þín skiptir einnig máli
hversu þung/þungur þú ert skiptir einnig máli þegar þú velur þér hlaupaskó og hvernig undirlagi þú ætlar að hlaupa á. Skór sem virka fínt fyrir léttan hlaupara á hrörðu undirlagi geta verið ómögulegir fyrir þyngri hlaupara á sama undirlagi. Þú gætir þurft öflugari loftpúða í hæl og tábergi til þess að lágmarki álagið á líkamann ef þú ert í þyngri kanntinum.
Skórnir geta fyrirbyggt meiðsli
hugsaðu um að láta það ekki verða að vana að æfa í slitnum hlaupaskóm, skórnir tapa upprunalegu eiginleikum sínu eftir mikla notkun, þegara skórnir slitna getur fóturinn laskast og dempunin minnkað sem getur haft áhrif á allan líkamann. Fylgstu vel með skónum, þegar þú byrjar að finna fyrir óþægindum er ef til vill komi tími til a skipta, það borgar sig að fyrirbyggja skaðann.
|