Forsíða Hlaup Afhverju hlaup?

header-hlaup-afhverjuhlaup



Hlauptu fyrir lífið

Manneskjan hefur alltaf hlaupið, af ólíkum ástæðum. Sumir til þess að komast af úr háska, aðrir til þess að setja heimsmet. Í dag er hlaup ein vinsælasta leiðin til að halda sér í formi og ein sú þægilegasta. Prófaðu hlaup af því það gerir þér gott bæði á líkama og sál.

Afhverju ætti ég að hlaupa?

Af því það er einstök upplifun! Vissulega geta það líka verið erfitt. Það getur verið hrífandi en þarfnast líka þrautseigju. Þú veist að það gerir líkamanum gagn og eftir á hefur þú sigrað áskorun við sjálfan þig og getur verið stolt/stoltur. Þarftu fleiri ástæður til að sannfærast þá eru nokkrar hér fyrir neðan:

  • Hlaup er einfalt og líkamanum eðlilsægt. Það þarf ekki að læra það sérstaklega. Hlaup þarfnast ekki mikils undirbúnings né útbúnaðar. Þú ræður hversu mikinn útbúnað þú kýst að eiga.
  • Hlaup er árangursríkt aðeins einn stuttur hlaupatúr gerir mikið gagn. Ef þú ert að flýta þér þá getur þú gert líkamanum meira gagn með því að hlaupa að krafti í 20 mínútur heldur en að skokka rólega í klukkustund.
  • Hlaup kemur þér í betra form það eykur súrefnisupptöku og þjálfar hjartað sem er stærsti vöðvi líkamans, þú færð meiri orku og aukið þol.
  • Hlaup leggur grunn að góðri heilsu fyrir lífstíð blóðflæði líkamans eykst og hættan á að fá hjarta- og æðasjúkdóma minnkar.
  • Hlaup gerir þig sterkari það styrkir allan líkamann og styrkir einnig beinin og minnkar áhættu á beinþynningu.
  • Hlaup er afslappandi eftir hlaupaæfingu er auðveldara að slappa af og láta þreytu og streitu líða úr sér. Þú munt sofa betur eftir hlaup, prófaðu bara!
  • Hlaup eykur orku og vellíðan Hlaupaþjálfun hjálpar þér að áorka meiru á hverjum degi. Þú verður ekki bara í betri líkamlegu ástandi, heldur einnig andlega, færð betri sjálfsmynd, verður léttari í lund, sköpunargleði eykst og almenn vellíðan eykst.