|

Af stað!
Þarft þú hjálp við að komast af stað eftir að hafa tekið hlé frá þjálfun í einhvern tíma. Eða ertu kannski ein/einn af mörgum sem eru að prufa hlaup í fyrsta sinn sem nýja leið til líkamsræktar. Við erum öll ólík, en flest þurfum við samt að hafa fyrir því að koma okkur af stað eftir hlé. Hérna eru nokkur góð ráð.
Gefðu þér tíma til að komast í form
Ef þú hefur ekki hlaupið reglulega undanfarin ár, eru gott að byrja á röskri göngu bæði fyrir vöðva líkamans og til að byrja að byggja upp þol. Klæddu þig í hentugan æfingafatnað og góða skó og byrjaðu á að fara út 2-3 í viku. Eftir nokkrar vikur/skipti þegar þú ert byrjuð/byrjaður að auka þolið, er hægt að byrja að prófa að hlaupa, taktu stutta hlaupaspretti og gakktu rösklega á milli til að byrja með. Vendu þig á strax í upphafi á að hita upp og teygja á fyrir hlaup, til þess að líkaminn virki sem best.
Finndu æfingafélaga einu sinni í viku
Sumum hentar best að æfa einir, hlusta á tónlist og gleyma sér um stund. Aðrir kjósa að æfa saman. Finndu út hvað hentar þér best. Það getur verið skemmtilegt að gera að venju að bóka eitt kvöld í viku með nágranna, fjölskyldumeðlimi eða vini og fara út að hlaupa saman.
Að halda áhuganum við
Hvað finnst þér skemmtilegast? Að setja þér fyrirfram ákveðin markmið, skrifa æfingadagbók eða fylgja æfingaplani? Taka tímann með skeiðklukku, hlaupa mismunandi vegalengdir, á mismunandi stöðum. Þetta er allt einstaklingsbundið, prófaðu þig áfram.
Fleiri góð ráð áður en þú byrjar
Þegar þú byrjar að stunda hlaup þarftu að drekka mikinn vökva, til þess að líkaminn sé vel undirbúinn, hlaup þarfnast mikillar orku. Ekki er mælt með að borða klukkustund fyrir hlaup til þess að líkaminn sé ekki að nota orkuna til þess að melta matinn í leiðinni. En borðaðu vel um klukkustund eftir hlaupið, bæði prótein og kolvetni, það er mikilvægt til að endurnæra vöðvana og viðhalda heilbrigði líkamans.
Gangi þér vel með æfingarnar!
|