Forsíða Líkamsrækt


likamsraekt

Líkamsrækt og heilsa 

Mikil vakning hefur orðið meðal almennings fyrir líkamsrækt og heilbrigðum lífstíl á undanförnum árum. INTERSPORT hvetur almenning til þess að hreyfa sig og stíga upp úr sófanum. Í verslunum okkar finnur þú allt sem þú þarft í ræktina; það nýjasta í æfingafatnaði og skóm frá stærstu sportvörumerkjum heims, líkamsræktartæki og fylgihluti. Við kappkostum að vera alltaf með besta verðið á markaðnum og 100% verðvernd á merkjavöru. Auk þess er INTERSPORT með eigin framleiðslu undir nafninu ENERGETICS og RYKÄ í æfingafatnaði og skóm, sem ekki eru síðri valkostur og oftast ódýrari. Kíktu á úrvalið í næstu verslun INTERSPORT.

Að finna tíma fyrir líkamsræktina í dagsins önn getur verið erfitt. Við hjá INTERSPORT viljum létta þér lífið og bjóðum upp á æfingatæki frá ENERGETICS, kjósir þú að njóta þess að stunda líkamsræktina heima.  

Æfingatækin frá ENERGETICS fást eingöngu í INTERSPORT: Hlaupabretti, fjölþjálfar, þrekhjól, æfingastöðvar og bekkir auk fjölda smáæfingatækja. Allt sem þú þarft til að byrja að æfa heima á þeim tíma þegar þér hentar.

Við óskum þér góðs gengis og heilbrigðis.

Starfsfólk Intersport.