Forsíða Um Intersport

Um Intersport

INTERSPORT á Íslandi

Fyrsta verslun INTERSPORT á Íslandi var opnuð 18. apríl 1998 að Bíldshöfða 20 í Reykjavík. Sú verslun var þá  jafnframt sú fimmta stærsta á Norðurlöndunum. Intersport á Bíldshöfða er fyrst og fremst fjölskylduverslun með íþrótta- og útivistarvörur og sportfatnað.
29. maí 2008 opnaði þriðja verslun INTERSPORT í Lindum í Kópavogi.  Þessi verslun er stærsta sportvöruverslun á Íslandi.
Intersport á Íslandi er í eigu Norvíkur sem jafnframt rekur Húsgagnahöllina og verslanir BYKO, ELKO, Nóatúns, Krónunnar og fleiri fyrirtæki. 

100% Verðvernd
LÆGRA VERÐ – ENDURGREIÐSLA:
Ef þú hefur keypt vöru í Intersport og finnur sömu vöru á lægra verði  í annarri verslun, þá endurgreiðum við þér mismuninn. Sýna þarf kassakvittun. Gildir í tvær vikur frá kaupdegi og gildir um allar vörur nema útsölu- eða tilboðsvöru.

SKILARÉTTUR:

Ef þú ert óánægður með vöru frá INTERSPORT getur þú skipt henni innan tveggja vikna frá kaupdegi eða fengið vöruna endurgreidda í formi inneignar. Varan verður að vera ónotuð í upprunalegum umbúðum og framvísa skal greiðslukvittun.

Gildir um allar vörur nema sund- og undirfatnað og útsöluvörur.

Alþjóðleg keðja 

INTERSPORT er leiðandi sportvöru-verslunarkeðja með starfsemi um allan heim. Verslanir INTERSPORT má finna í 25 þjóðlöndum og telja rúmlega 4700. 
Hin alþjóðlega samvinna á rætur sínar að rekja aftur til sjötta áratugarins þegar nokkrar sjálfstæðar sportvöruverslanir í Sviss, Frakklandi og Þýskalandi tóku sig saman og komu á fót sameiginlegu innkaupakerfi til að ná fram frekari rekstrarhagkvæmni. Það var þessi samvinna sem leiddi til stofnunar INTERSPORT-keðjunnar, en í dag er sá þáttur aðeins hluti af þeirri samvinnu sem á sér stað.  
INTERSPORT er stærsta sportvöru-verslunarkeðja í heiminum í dag og eru höfuðstöðvar Intersport í Bern í Sviss.