Forsíða Útivist Um bakpoka

bakpoki


poloroid-bakpokarAð velja réttan bakpoka
 

Það eru til bakpokar í mörgum ólíkum stærðum og gerðum. Miðað þú við í hvað þú ætlar að nota bakpokann þegar þú ferð að velja þér bakpoka. Ertu að fara að ganga eða kannski hjóla? Ætlar þú að vera í einn eða fleiri daga, hversu mikið og hversu þungt er það sem þú ætlar að hafa með þér. Þegar þú mátar bakpoka er gott að prófa hversu þungur pokinn er án þess að það sé búið að pakka í hann.

 

Fullpakkaður "göngu"-bakpoki vegur frá 5-8 kg og rúmar 20-40 lítra. Ef þú ætlar að nota bakpokann dag eftir dag í marga daga, þá mun hann koma til með að slitna og sjúskast, þess vegna er mikilvægt að velja poka úr sterku efni til að byrja með. Bakpokar fyrir hjólaferðir, eða klifur eiga að sitja sem límdir við hrygginn, til að halda janfvægispunktinum á réttum stað og líka til þess að pokinn taka ekki á sig vind og hafi þannig áhrif á t.d. hraða hjólreiðamanna. Þjappaðu pokanum vel saman með reimunum og skorðaðu innihaldið vel, þá tekur pokinn minna pláss og er auðveldari í meðförum. Veljið bakpoka sem heftir ekki handahreyfingar þínar, hvort sem þú ert með hjálm eða ekki.

 

Þegar þú velur bakpoka í tjaldferðalög eða fjallamensku er mælt með að pokinn rúmi 40-120 lítra og geti borið að lágmarki 55 kg. Það er mikilvægt að pokinn sé þægilegur og hafi marga aðlögunareiginleika þannig að hægt sé að nota hann til lengri tíma í mismunandi ferðir. Ef þú ætlar að bera þungar birgðar er gott að pokinn sé vel skipulagður með mörgum geymslumöguleikum og hólfum.

 

Að pakka í bakpokann

Það eru til nokkrar þumalputtareglur sem gott er að hafa í huga þegar maður pakkar í bakpoka til þess að það sé auðveldara að bera hann. Það getur tekið þig nokkur skipti að komast að því hvað hentar best fyrir þig miðað við hvernig þú notar pokann. En almennt er gott að hafa efst það sem þú notar mest á göngunni t.d. eitthvað matarkyns sem hægt er að grípa í þegar hungrið gerir vart við sig t.d. súkkulaði eða orkustöng, síðan er gott að hafa efst myndavél, vasaljós og hlífðarfatnað. Ef það er hólf framan á pokanum er gott að stinga þar áttavita, korti og ef til vill GPS tæki. Sjúkravörum má koma fyrir í lokinu ásamt smáhlutum eins og lyklum, veski. Þungir hlutir ættu að fara næst hryggnum til að halda jafnvægispunktinum í lagi t.d. primus, gas, eldunarílát, osfv. Á botninn fara léttari hlutir og aukaföt sem þú þarft sjaldan að grípa til. 

Svefnpokinn kemur svo neðst eða pakkast sér undir bakpokanum, ef þú ert með tjald þá fer það neðst og svefnpokinn ofan á bakpokann og súlurnar meðfram hliðunum. Pakkið tímalega og skipulega í bakpokann fyrir ferðalagið, þannig að hver hlutir eigin sinn stað og þú lendir ekki í vandræðum með að finna hlutina þegar á reynir.