Forsíða Útivist Um gönguskó

skor

poloroid-skor
Gönguskór og skór til útivistar

Þegar þú ferð af stað til að máta nýja gönguskó er best að gera það seinni part dags, ef að það er mögulegt, þá eru fæturnir oft orðnir aðeins þrútnari. Vertu í samskonar sokkum og þú ætlar að nota með skónum í útivistina. Það er mjög mikilvægt að velja rétta stærð af gönguskóm, prófið að ganga niður halla og prófið síðan að standa á tám, það á ekki að finna fyrir óþægindum í tánum við það. Fóturinn á ekki að geta hreyfst mikið upp og niður eða til hliðar í skónum því það eykur hætti á blöðrum og særindum. Hælgripið er einnig mikilvægt, þú þarft að finna góðan stuðning við öklann. Þú þarft líka að hugsa um hvernig gönguskó þú þarft hvort þú ert að fara í léttari göngur eða erfiðar göngur á ójöfnum. Háir gönguskór hafa harðari sóla, en styðja betur við öklann léttari gönguskór hafa mýkri sóla og meiri dempun og gefa betri spyrnu. Eftir að þú hefur eignast skóna, þá skaltu ganga þá fyrst áður en þú heldur á ævintýranna, til að koma í veg fyrir særindi.

 

Vel hirtir skór endast lengur

Með réttri umhirðu getur þú látið gönguskóna þína endast í mörg mörg ár og upplifað á þeim mörg og spennandi ævintýri. Lykilinn er að fyrirbyggja og verja þá með vatnsvörn, vaxi eða leðurfeiti. Það fer eftir hverskona skó þú hefur valið þér hvaða tegund af vörn á best við, til eru ýmsar gerðir fyrir leður, rússkinn og skó sem eru úr bæði leðri og efni. Ef þetta er ekki gert ná óhreinindi að smjúga inn í holurnar á leðrinu og þá slitna gönguskórnir fyrr. 

Þrífið gönguskóna alltaf eftir notkun ef með þarf. Ef að gönguskórnir hafa blotnað er gott að láta þá þorna við stofuhita það er einnig gott ráð að setja dagblöð ofan í skóna sem draga í sig rakann. Forðist ofna eða þurrkskápa, það hefur slæm áhrif á leðrið. 
Skór sem búið er að verja fyrirfram haldast hreinni og þurrari. Óhreinindi ná ekki að festast eins á skónum og vel varðir göngskór hrinda frá sér vatni. Byrjið á því að sprauta vatnsvörn á skóna, síðan þegar þeir hafa þornað, allavega 2 klst. síðar má bera leðurfeiti eða vax eftir því sem við á og nudda því vel niður í leðrið, síðan bursta og strjúka vel yfir eftirá.