Forsíða Útivist Um svefnpoka

svefnpokipoloroid-svefnpokar

Að halda á sér hita í svefnpokanum

Til þess að hafa það hlýtt og notalegt þegar maður sefur í tjaldi þarf virkilega að vanda valið þegar maður velur sér svefnpoka. Hafðu í huga í hvernig ferðir og á hvaða árstíma þú ætlar að nota svefnpokann, ef til vill þarftu líka að spá í mismunandi verðflokka. Þægindahitastig í svefnpoka miðast við það hitastig sem manneskjan fær þægilegan nætursvefn án þess að vera að frjósa úr kulda. Þægindahitastig getur þó verið mismunandi á milli manna en miðað er við að pokinn geti haldið þér heitum þannig að líkamshitinn falli ekki niður fyrir eðlileg mörk.

 

Þegar þú velur þér svefnpoka, þá þarft þú að velja rétta stærð, stuttan eða langan, breiðan eða þröngan. Það er mikilvægt að passa vel í pokann til að minnka áhættuna á að verða kalt. Fyrir þau ykkar sem sofa órólega og eru vön að bylta ykkur og snúa í svefni er ef til vill betra að velja aðeins stærri og breiðari poka.

 

Það er loftið í svefnpokanum sem heldur hitanum. Það þarf því að klæða sig rétt í pokann, með því að koma sér vel fyrir í pokanum með hettuna á pokanum upp fyrir haus og hafa aðeins lítið gat fyrir andlitið helst heita loftið allstaðar í pokanum og umvefur líkamann. Ef þú vilt ekki hafa höfuðið ofan í pokanum skaltu reima hann fast um axlirnar með hendurnar ofan í, þannig að sem minnst loft komist ofan í pokann. Ef það verður of heitt um nóttina má gera loftgat með rennilásnum við fæturna.

 

Ef ekki á að nota svefnpoka í einhvern tíma er best að geyma hann upphangandi á snaga frekar en ofan í hulstrinu. Þegar pokanum er svo pakkað ofan í hulstrið setjið þá fótaendann fyrst ofan í til að pressa út loftið.

 

Undirlag – tjalddýnur

Undirlagið sem þú velur að sofa á hefur áhrif á hversu þægileg útilegan verður, ekki bara hversu mjúkt það er heldur hefur það mikinn áhrif á hvort þér geti orðið kalt. Hefðbundnasta undirlagið er tjalddýna úr frauðplasti. Það getur verið svolítið hart að sofa á þannig dýnu en áhrifaríkt til að halda kuldanum frá jörðinni í skefjum og það er ódýr lausn. Það eru einnig til sjálfuppblásanlegar dýnur af ólíkum gerðum, breidd og þykkt. Þær halda einnig kuldanum frá jörðinni í skefjum með því að láta hitann frá líkamanum koma á móti kuldanum, þær eru mjög hentugar en kosta aðeins meira en frauðplast. Margir kjósa að sofa á vindsæng, sem er aðeins þyngri og það þarf að hafa með sér pumpu til að blása hana upp. Það er algengur miskilningur að vindsæng sé besti kosturinn þar sem 85% kuldans kemur frá jörðinni og fer beint í gegnum vindsængina sem hefur minni einangrun, en mörgum finnst þægilegt að liggja á henni. Meginreglan við val á undirlagi er, því þyngri sem þú ert, því þykkara undirlag þarft þú og veldu efni sem veitir vörn gegn jarðkulda.