Að velja rétta tjaldið
Það eru til margar ólíkar gerðir af tjöldum, sem henta við mismunandi aðstæður. Fyrir fjölskylduútileguna þarf ef til vill rúmgott tjald, á meðan fjallgöngugarpurinn þarf að huga að því að tjaldið sé létt og pakkist vel.
Þó tjöldin séu ólík eru þau uppbyggð á sama hátt. Ytra tjaldið er það sem skiptir mestu máli og hlífir okkur fyrir veðri og vindum. Það er mikilvægt að það sé vatnsþétt og slitsterkt. Innra tjaldið er síðan úr vatnsþéttu nælonefni sem hangir aðeins frá ytra tjaldinu þannig að móðan sem myndast á ytra tjaldinu helst frá. Tjaldstangir halda tjaldinu stöðugu. Eftir því sem inngangurinn er hærri og breiðari er auðveldara að fara inn og út úr tjaldinu án þess að hafa áhrif á vatnsþéttni ytra tjaldsins. Innra rými í tjaldi skiptist yfirleitt í svefnpláss og fortjald. Fortjaldið er oftast án gólfefnis og getur nýst til að pakka, nærast eða bara til að sýsla eitt og annað á góðri stundu. Fortjald skapar einnig betra loftstreymi í öllu tjaldinu, ekki síst þegar rignir úti. Gólfið í svefnrýminu er úr blöndu af polýúretan og nælonefni.
Braggatjald
Það er mjög einfalt að setja upp braggatjald og fljótlegt, en það þarf að festa niður stormbönd og hæla til að ganga úr skugga um að það standi af sér vind. Það er oft rúmgott með góðu fortjaldi og er ekki viðkvæmt fyrir vindi. Braggatjöld eru oftast þyngri og dýrari og henta vel í vetrarútilegu, þau sjást oft í fjallaleiðöngrum.
Kúlutjald
Kúlutjald getur staðið sjálft án hæla og banda, í staðinn eru bogastangir sem spenna upp tjalddúkinn og stingast í jörðina á hornunum. Kúlutjöld eru einföld í uppsetningu og fljótleg, hægt er að setja þau upp nánast á hvaða undirlagi sem er. Kúlutjald er léttara en braggatjald, þarf minna pláss og er hægt að nota við fjölbreyttar aðstæður en á gallinn við það er að það hefur ekki fortjald.
Gott að vita um tjöld
Tjaldstangirnar eru oftast litamerktar, það er sami litur á tjalddúknum þar sem stöngin á að fara inn í eins og á stönginni sjálfri. Það er eðlilegt að þakið á tjaldinu sé rakt á morgnana, andadrátturinn frá þeim sem sofa í tjaldinu myndar móðu yfir nóttina. Hægt er að minnka rakann og fá meiri hita í tjaldið með því að setja dúk á gólfið í fortjaldinu.
Þegar sofið er í tjaldi kemur oft mikill kuldi frá jörðinni, þess vegna er mikilvægt að hafa gott undirlag undir svefnpokunum sem vinnur á móti jarðkuldanum, og vera í svefnpoka sem passar við árstíðina til að halda á sér hita.
Hugsaðu vel um tjaldi, þá áttu það lengur
Gætið þess að tjalda ekki á greinum, hríslum eða steinum sem geta skaðað tjaldgólfið. Spennið ekki tjaldið um of þannig að rennilásinn og saumar verði ekki fyrir of miklu álagi. Ef rennilásinn er stífur þá má smyrja hann með parafínolíu. Þegar það er mögulegt, látið tjaldið þorna áður en því er pakkað saman. Reynið annars að þurrka það eftir ferðalagið eins fljótt og auðið er til að koma í veg fyrir að það mygli. Sópið innan úr tjaldinu áður en því er pakkað saman. Sandur og steinar geta slitið tjalddúkinn. Þvoið tjaldið með mildu sápuvatni og svampi jafnt yfir ef með þarf, látið það þorna vel. Ekki gleyma að pakka tjaldinu á skipulagðan hátt, þá kemur þú í veg fyrir að það verði fyrir hnjaski, rifni, rennilásinn festist eða að þig vanta eitthvað t.d. hæla næst þegar þú ætlar að nota tjaldið.
Hafðu eftirfarandi í huga
Gætið þess að leggja ekki dót inn í tjaldinu upp við tjalddúkinn, til að koma í veg fyrir að raki komist í gegn. Tjaldsnúrurna fara oft aðeins úr skorðum á nóttinni, strekkið þær eftir þörfum og gætið að hvar þið gangið um. Hafið tjaldið alltaf upprennt, til að halda hitanum inni og mýinu úti. Æfið ykkur á að tjalda einu sinni áður en þið haldið á vit ævintýranna. Tjaldið á sléttu og þurru undirlagi. Þegar tjaldað er við strönd er tjaldið sérstaklega rakt á morgnana. Hafið styttri hlið tjaldsins á móti vindi þegar að það er mikið rok.
Ráðleggingar þegar þú ferð í tjaldútilegu með barn
Börnum finnst gaman að hjálpa til við að tjalda, leyfið þeim að taka þátt og æfið ykkur að tjalda heima áður en lagt er af stað. Skipuleggið matatímann með nægum fyrirvara. Takið með eitthvað sem er einfalt og fljótlegt að matbúa, börnin verða oft mjög svöng eftir mikla útiveru og spenning. Takið með gúmmístígvél og regnföt fyrir alla fjölskylduna. Grasið er oft blautt á morgnana og maður veit aldrei hvenær kemur rigning. Gleymið ekki að taka með lyf og sjúkrakassa og sólarvörn. Takið með vasaljós og batterí, þegar það fer að dimma þá er skemmtilegt að fara með barninu út með vasaljós. Ennisljós er góð hugmynd fyrir þig, þá hefur þú hendurnar friar ef barnið þarf á hjálp að halda.
|