Forsíða Útivist Um útivistarföt

utivistarfot

poloroid-fatnadur

Að klæða sig til útvistar.

Það skiptir máli hvernig við klæðum okkur þegar við leggjum af stað í t.d. göngu eða ætlum að stunda útivist. Að vera illa eða vitlaust klæddur getur eyðilagt, annars skemmtilega upplifun. Fötin eiga að skýla okkur fyrir veðri og vindum, en hafa líka önnur hlutverk eins og t.d. að halda okkur þurrum þó að við svitnum. Það er ekki síst samsetningin á fötunum sem gerir gæfumuninn. Þegar þú vilt vera við öllu búinn þá er mjög gott að klæða sig í lögum, í innsta- milli og ysta lag, þá er auðvelt að aðlaga sig eftir veðrabreytingum og fara úr og í eftir þörfum þegar líður á útivistina.

 

- innsta lag

innsta lag er fatnaðurinn sem er næst húðinni, hann hefur það hlutverk að flytja raka frá líkamanum og halda á honum hita. Það er mikilvægt að rakinn komist burt því annars mun hann einangra kuldann við líkamann. Til eru margar gerðir af útivistarundirfötum úr háþróuðum efnum sem halda líkamanum þurrum og hrinda frá sér raka. Þessi undirfatnaður hentar vel og þornar fljótt, en getur ef til vill byrjað að lykta illa og þarf að fara oft í þvott. Ullarundirföt eru líka góður kostur sem innsta lag, þau hleypa raka vel í gegnum sig án þess að líkaminn kólni og þau þarf ef til vill ekki að þvo eins oft.

 

- Milli lag

Milli lagið þarf einnig að flytja raka burt frá líkamanum en hefur að auki það hlutverk að halda hita og hitajafnvægi. Flíspeysur eru sérstakelga léttar og henta vel sem milli lag og léttar göngubuxur.

 

- Ysta lag

Hefur fyrst og fremst það hlutverk að skýla okkur fyrir veðrum eins og rigningu og roki. Vind og vatnsheldar yfirhafnir úr góðum efnum með öndunareiginleikum eru besti kosturinn. Það getur komið sér mjög vel þegar hægt er að opna milli- og ysta lag t.d. með rennilás undir höndum á úlpum og jökkum eða renna upp skálmum á buxum til að lofta út og inn.